Frá skólagörðum í Kópavogi.
Nú er kominn í loftið nýr þjónustuvefur, fristund.is, sem auðveldar íbúum að finna upplýsingar um íþróttir, námskeið og annað skipulagt frístundastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Á vefnum má sjá allt framboð frístundastarfs á einum stað, flokkað eftir aldri og staðsetningu, með einfaldri leit og skýrum upplýsingum.
Markmiðið með vefnum er að einfalda aðgengi að frístundastarfi og bæta yfirsýn fyrir foreldra og forráðamenn og þá sem vilja sækja frístundastarf. Í stað þess að leita á mörgum mismunandi vefsíðum er framboðið nú aðgengilegt í einni miðlægri gátt, með áreiðanlegum og reglulega uppfærðum upplýsingum um það sem er í boði.
Börn og ungmenni sækja oft tómstundir þvert á bæjarmörk og með frístund.is er auðvelt að sjá allt framboð á höfuðborgarsvæðinu, hvort sem starfið er í Kópavogi eða í nágrannasveitarfélögum. Þetta eykur yfirsýn, einfaldar val á tómstundum og stuðlar að jafnræði í aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi.
Frístund.is er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Vefurinn var upphaflega þróaður af Reykjavíkurborg, sem heldur utan um rekstur hans, í samstarfi við Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ og Mosfellsbæ. Samstarfið tryggir samræmda lausn sem nýtist íbúum þvert á sveitarfélög.
Skoða frístundavef