Stóri plokkdagurinn 2026

Stóri plokkdagurinn er að þessu sinni sunnudagurinn 26.apríl.
Stóri plokkdagurinn er að þessu sinni sunnudagurinn 26.apríl.

Kópavogsbær tekur þátt í árlega hreinsunarátakinu Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 26.apríl.

Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af Félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi.

Hægt verður að nálgast ruslapoka og einnota hanska á eftirfarandi stöðum:

  • Þjónustumiðstöð Askalind 5
    • Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 14:00
    • Laugardagur 25. apríl milli 10:00 og 14:00
  • Þjónustuver Digranesvegi 1
    • Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 14:00
  • Þjónustuver Vallakór 4
    • Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 13:00

Plokkarar eru hvattir til að senda má póst á Þjónustumiðstöð Kópavogs til að tilkynna staðsetningu poka, sem verða sóttir eftir helgi á netfangið thjonustumidstod (hja) kopavogur.is. Einnig er hægt að fara með það sem safnast beint í endurvinnslustöðvar SORPU.

PLOKKTRIXIN

Hvað þarf að hafa?

  • Glæra plastpoka - best er að hafa tvo poka, setja plastið í einn og allt annað í hinn.
  • Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá.
  • Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.

Hvernig erum við útbúin?

  • Klæðum okkur eftir aðstæðum. Gott er að hafa hanska og jafnvel plokktangir.
  • Öryggisvesti eru ákjósanleg en skilda ef við erum að plokka meðfram vegum eða við götur.

Hvað á að gera við þar sem safnast?

  • Senda tölvupóst á netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is með staðsetningu pokanna sem verða sóttir eftir helgi.
  • Fara með plokkafraksturinn á næstu endurvinnslustöð SORPU.

Frekari upplýsingar um Stóra plokkdaginn er að finna á plokk.is