Stóri plokkdagurinn er að þessu sinni sunnudagurinn 26.apríl.
Kópavogsbær tekur þátt í árlega hreinsunarátakinu Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 26.apríl.
Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af Félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi.
Hægt verður að nálgast ruslapoka og einnota hanska á eftirfarandi stöðum:
- Þjónustumiðstöð Askalind 5
- Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 14:00
- Laugardagur 25. apríl milli 10:00 og 14:00
- Þjónustuver Digranesvegi 1
- Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 14:00
- Þjónustuver Vallakór 4
- Föstudagur 24. apríl milli 8:00 og 13:00
Plokkarar eru hvattir til að senda má póst á Þjónustumiðstöð Kópavogs til að tilkynna staðsetningu poka, sem verða sóttir eftir helgi á netfangið thjonustumidstod (hja) kopavogur.is. Einnig er hægt að fara með það sem safnast beint í endurvinnslustöðvar SORPU.
PLOKKTRIXIN
Hvað þarf að hafa?
- Glæra plastpoka - best er að hafa tvo poka, setja plastið í einn og allt annað í hinn.
- Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá.
- Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.
Hvernig erum við útbúin?
- Klæðum okkur eftir aðstæðum. Gott er að hafa hanska og jafnvel plokktangir.
- Öryggisvesti eru ákjósanleg en skilda ef við erum að plokka meðfram vegum eða við götur.
Hvað á að gera við þar sem safnast?
- Senda tölvupóst á netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is með staðsetningu pokanna sem verða sóttir eftir helgi.
- Fara með plokkafraksturinn á næstu endurvinnslustöð SORPU.
Frekari upplýsingar um Stóra plokkdaginn er að finna á plokk.is