- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Áður hefur þurft að grípa til uppsagna húsnæðis ef það gerist en nú stendur leigjendum til boða að kaupa húsnæðið með 5% útborgun eigin fjár, 80% láni hjá fjármálafyrirtæki og 15% verðtryggðu viðbótarláni frá Kópavogsbæ, sem er afborgunar og vaxtalaust fyrstu árin.
Þverpólitískur starfshópur í húsnæðismálum lagði fram skýrslu síðastliðið haust með tillögum í húsnæðismálum sem varða bæði íbúðakosti og félagslega kerfið. Í samræmi við niðurstöður hópsins hefur Kópavogsbær einnig beitt sér fyrir fjölgun minni íbúða á fyrirhuguðu uppbyggingarsvæði sunnan Smáralindar. Þá tryggði bærinn sér kauprétt að 4,5% húsnæði sunnan Smáralindar og í Auðbrekku til að geta ráðstafað í tengslum við félagslega kerfið eins og lagt var til af starfshópnum.