Framkvæmdir á Álfhólsvegi 13. júní

Framkvæmdir á Álfhólsvegi 13. júní
Framkvæmdir á Álfhólsvegi 13. júní

Fyrirhugað er að fræsa malbik á Álfhólsvegi á milli Tunguheiði og Álfaheiði þriðjudaginn 13. júní á milli klukkan 12:00 og 16:00 og verður götuhlutinn lokaður á meðan framkvæmdum stendur.

Vegfarendum er bent á hjáleiðir um Digranesheiði og Skálaheiði eða Túnbrekku, Nýbýlaveg og Álfabrekku á meðan lokun stendur. Hliðargata að húsum nr. 81 til 113 við Álfhólsveg verður breytt í tvístefnugötu með aðkomu við gatnamót Álfhólsvegar og Túnbrekku á meðan framkvæmdum stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.

Framkvæmdir á Álfhólsvegi 13. júní