- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Nemendur leik- og grunnskóla í Kópavogi, kennarar og starfsfólk skólanna, taka þátt í göngu gegn einelti sem fer fram föstudaginn 6. nóvember. Gangan fer nú fram í þriðja sinn og er sem fyrr dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna.
Markmið göngu gegn einelti er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.
Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni í fyrra og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.
Meðfylgjandi mynd var tekin í göngunni í fyrra.
Dagskrá í skólahverfum hefst á bilinu 8.30 til 10.00.