Gróðursettu 800 birkitré

Skipulagsráð og starfsfólk kolefnisjafnar.
Skipulagsráð og starfsfólk kolefnisjafnar.

Skipulagsráð Kópavogs og starfsfólk skipulagsdeildar gróðursettu 800 birkitré í vikunni. Tréin voru gróðursett við vesturenda Austurkórs, á Smalaholti en svo heitir vestasti hluti Rjúpnahæðarinnar. Kolefnisspor hópsins var reiknað út á vefsíðunni kolvidur.is og varð niðurstaðan sú að með 800 plöntum væri búið að kolefnisjafna hópinn fyrir árið, flugferðir sem akstur, og rúmlega það.