Íbúum boðið að taka þátt í skógrækt

Guðmundarlundur.
Guðmundarlundur.

Á Degi íslenskrar náttúru, föstudaginn 16. september nk., verður útivistar- og fjölskyldudagur haldinn í samstarfi Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar, þar sem hvatt er til hreyfingar, samveru og skógar- og náttúruupplifunar.

DAGSKRÁ

Dagskrá dagsins hefst kl 17:00 þar sem safnast verður saman í Fræðslusetrinu í Guðmundarlundi í Leiðarenda 3 og verður heitt á könnunni. Fljótlega verður gengið út á Vatnsendaheiði undir leiðsögn og hugað að gróðri og sögu.
Á heiðinni verður horft til framtíðar og gróðursettar trjáplöntur í þágu aukinna lífsgæða.

Skógrækt er góð leið til að binda CO2 úr andrúmsloftinu til langs tíma en um leið er verið að stuðla að jarðvegsvernd. Sveppum og mordýrum í jarðvegi fjölgar, vatnsmiðlun eflist og skógurinn opnar nýja möguleika til útivistar svo eitthvað sé nefnt.
Að gróðursetningu lokinni verður farið til baka í Guðmundarlund.

*Athugið að þeir sem ekki treysta sér að ganga að Vatnsendaheiði en vilja taka þátt í gróðursetningu eða fylgjast með, þá er hægt að aka bifreið að gróðursetningarstaðnum.

Að lokinni formlegri dagskrá geta þátttakendur dvalið áfram í Guðmundarlundi og bardúsað við ýmislegt skemmtilegt, enda hefur lundurinn upp á margt að bjóða. Í lundinum er meðal annars 10 brauta frísbígolfvöllur, leiktæki og frábær 9 holu minigolfvöllur. Inni í miðjum Guðmundarlundi er Hermannsgarður, lítill og vinalegur blómagarður með steinbeðum, stígum og bekkjum og svo er það auðvitað skógurinn sjálfur sem býður upp á mikla möguleika til leikja og útivistar.

Fyrir þá sem ætla að taka hring á iðjagrænum minigolfvellinum þá má benda á að hver og einn verður að taka með sér eigin golfkylfur og -kúlur og það sama á við um frísbígolfvöllinn, fólk verður að koma með sína diska.

Fyrir þá sem ekki rata í Guðmundarlund er einfaldast að fara inn á https://ja.is/ og slá inn: Leiðarendi 3.