Fyrsti áfangi Borgarlínu liggur meðal annars um Borgarholtsbraut.
Haldinn verður kynningarfundur vegna fyrstu lotu Borgarlínu, sem liggur milli Ártúnshöfða og Hamraborgar, miðvikudaginn 15.janúar kl. 17.00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum, Hábraut 1a.
Fundinum er streymt - horfa
Fundurinn er haldinn til kynningar á umhverfismatsskýrslu þessarar fyrstu lotu og til að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags.
Þar er meðal annars fjallað um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt er fjallað um mismunandi útfærslur á hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og
almenningssamgangna.
Öll velkomin!
Dagskrá fundarins
- Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri opnar fundinn
- Borgarlínan sett í samhengi – Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu
- Kynning á aðalskipulagi – Stefán Gunnar Thors frá VSÓ ráðgjöf
- Kynning á umhverfismati – Rúnar Dýrmundur Bjarnason frá COWI
- Ávarp og samantekt – Hjördís Ýr Johnson, formaður skipulags- og umhverfisráðs
- Spurningar og umræður
- Fundarstjóri er Þorsteinn Hermannsson
Fundinum er streymt en einungis tekið við spurningum á fundinum frá fólki sem er mætt á staðinn. Ef þau sem ekki eiga heimangengt hafa spurningar, vinsamlegast sendið á skipulag@kopavogur.is
Umhverfismatsskýrslan og skipulagstillögurnar eru aðgengilegar í Skipulagsgáttinni þar sem öll geta kynnt sér gögnin og veitt umsögn en gögnin voru sett inn í nóvember. Athugasemdafrestur er til 25. janúar 2025.
Skoða Umhverfismatsskýrslu
Skoða Aðalskipulag
Fara í Skipulagsgátt
Einnig verður haldinn sambærilegur kynningarfundur í Reykjavík fimmtudaginn 9. janúar klukkan 17 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.