Læra sund í Kópavogi

Hópur grænlenskra barna dvelur í Kópavogi, lærir sund og kynnist íslensku samfélagi.
Hópur grænlenskra barna dvelur í Kópavogi, lærir sund og kynnist íslensku samfélagi.

Á hverju ári síðan 2006 hefur KALAK, vinafélag Grænlands og Íslands, í samvinnu við Kópavogsbæ, Hrókinn og fjölmörg fyrirtæki og einstaklinga, boðið 11 ára börnum af austurströnd Grænlands til tveggja vikna dvalar á Íslandi. Aðaltilgangur ferðarinnar er að kenna börnunum sund og kynna þau fyrir jafnöldrum sínum og íslensku samfélagi.

Í ár komu þau föstudaginn 6. september og fara til baka laugardaginn 21. sept.  Hópurinn samanstendur af 16 börnum og 5 kennurum.

Sundkennarar eru þau Guðrún H. Eiríksdóttir og Haraldur Erlendsson, en þau hafa annast sundkennsluna af mikilli fagmennsku undanfarin ár. Börnin byrja daginn á sundkennslu í Salalaug og taka svo þátt í skólastarfi með jafnöldrum sínum í Vatnsendaskóla. Eftir hádegi fara þau svo aftur í sund. 

Þrátt fyrir tungumálaörðugleika hefur allt samstarf gengið ljómandi vel. Fyrir kennara er það unun að fá að kenna þessum börnum, þau eru svo spennt og jákvæð að takast á við að læra nýja hluti sem hafa verið þeim algjörlega ókunnugir áður.

Margir leggja sitt af mörkum við að gera dvöl barnanna sem ánægjulegasta. Þau heimsækja Húsdýragarðinn og Skautahöllina, versla smáveigis í Kringlunni, fara í ferð um Gullna Hringinn og á hestbak.  Heimsókn á  Bessastaði er ein af stóru stundunum fyrir börnin og kennara þeirra.