Leikskólanum Efstahjalla lokað vegna myglu

Leikskólinn Efstihjalli.
Leikskólinn Efstihjalli.

Ákveðið hefur verið að loka húsnæði leikskólans Efstahjalla í Kópavogi frá og með þriðjudeginum 5.október vegna myglu og rakaskemmda sem komið hafa í ljós í skólanum. Starfsemi skólans fellur niður í tvo daga meðan unnið er að endurskipulagningu. Þegar hefur verið hafist handa við að útvega starfseminni annað húsnæði. 

Rúmlega níutíu börn dvelja í leikskólanum sem er fimm deilda. Foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum hafa verið upplýst og fundað með starfsfólki um málið.  

Leka varð vart í tengibyggingu milli yngri og eldri hluta Efstahjalla í sumar. Mygluskemmdir í tengibyggingunni voru staðfestar í september og foreldrar og forráðamenn upplýst um þær í kjölfarið. Við rif á lofta- og veggjaklæðningu í ganginum kom í ljós umtalsvert meiri skemmdir en gert var ráð fyrir og því ákveðið að fara í sýnatöku víðar í húsinu.  

Nú um helgina bárust niðurstöður úr seinni sýnatöku sem staðfesta að myglu má finna á fleiri stöðum í skólanum. Því er gripið til þeirra varúðarráðstafana að loka leikskólanum.   

Næstu vikur verða notaðar til að kanna nánar ástand hússins og ákveða næstu skref.