LJÓÐSTAFUR JÓNS ÚR VÖR

Ljóðstafur Jóns úr Vör
Ljóðstafur Jóns úr Vör

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör.
Öllum skáldum er velkomið að taka þátt en ljóðið má ekki hafa birst áður.

Ljóði skal skilað í fjórum eintökum og skal hvert eintak merkt dulnefni. Með fjórritinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefni skáldsins sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð
en öllum öðrum gögnum eytt. Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum laugardaginn 21. janúar 2023 við hátíðlega athöfn
í Salnum en þá verða liðin 21 ár síðan Ljóðstafurinn var fyrst veittur.

Nánari upplýsingar:
meko(hjá)kopavogur.is

SKILAFRESTUR Í KEPPNINA ER
TIL OG MEÐ 5. NÓVEMBER 2022.

Utanáskrift umslags er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Menning í Kópavogi
Digranesvegi 1
200 Kópavogi

Frekari upplýsingar um Ljóðstafinn