Ljóðstafur Jóns úr Vör

Jón úr Vör.
Jón úr Vör.

Ljóðstafur Jóns úr Vör verður afhentur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi, þriðjudaginn 21. janúar 2025 kl. 18:00.

Við sama tilefni verða úrslit kunngjörð í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. 
Alls bárust 270 ljóð í keppnina í ár, sem er merki um að ljóðið lifir góðu lífi.

Afhending Ljóðstafsins er hluti af Dögum Ljóðsins en það er viðburðaröð á vegum Kópavogsbæjar sem fer fram í Menningarhúsunum í janúar ár hvert.


Um Ljóðstaf Jóns úr Vör
Árið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum Lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins sem lést 4. mars 2000.

Jón fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000.

Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.

Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.