Lokað vegna malbikunar þriðjudaginn 23. júlí

Marbakkabraut lokuð vegna malbikunar
Marbakkabraut lokuð vegna malbikunar

Þriðjudaginn 23. júlí frá kl. 9:00 og fram eftir degi verður Marbakkabraut malbikuð. Gatan verður lokuð á meðan framkvæmdir standa yfir og því er íbúum við Marbakkabraut og Huldubraut ráðlagt að leggja bílum sínum á bílastæðum við leikskólann Marbakka, Sæbólsbraut eða við Kársnesbraut til að tryggja að hægt verði komast leiðar sinnar á morgun. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Marbakkabraut lokuð