Munum leiðina: Vitundarvakning Alzheimer samtakanna

Fjólublár bekkur sem hefur verið settur upp á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer sa…
Fjólublár bekkur sem hefur verið settur upp á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina.

Fjólublár bekkur hefur verið settur niður á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma.

Settir hafa verið niður fjólubláir bekkir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu

  • Kópavogsbær – bekkur staðsettur á Kársnesi
  • Seltjarnarnes – bekkur staðsettur við Gróttu
  • Reykjavíkurborg – bekkir við Reykjavíkurflugvöll og við göngubrúnna innst í Fossvogi
  • Garðabær – bekkur við Sjáland
  • Hafnarfjörður – bekkur gömlu sundlaugina í Hafnarfirði.

Allir bekkirnir eiga þeir það sameiginlegt að standa við sjávarsíðuna með fallegu útsýni en saman mynda þeir einnig skemmtilega leið í gegnum öll þessi sveitarfélög.

21 september er alþjóðlegur dagur heilabilunar og er þetta liður í vitundarvakningu Alzheimersamtakanna á Íslandi um málaflokkinn sem ber yfirskriftina Munum leiðina. Á bekkjunum er QR kóði sem hægt er að skanna og styrkja um leið samtökin. Hvetjum fólk til að taka fallegar og skemmtilegar myndir af sér á þessum fallegum bekkjum eða bara að setjast niður og njóta útsýnisins.