Nemendur verðlaunaðir á ljóðahátíð

Guðmundur Ólason, Unnur Hlíf Rúnarsdóttir og Ada Kozika verðlaunahafar í ljóðakeppni grunnskóla Kóp…
Guðmundur Ólason, Unnur Hlíf Rúnarsdóttir og Ada Kozika verðlaunahafar í ljóðakeppni grunnskóla Kópavogs.

Unnur Hlíf Rúnarsdóttir, nemandi Vatnsendaskóla, fékk fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs, fyrir tvö ljóð, Framtíðina og Auðlindir alheimsins. Verðlaun voru afhent við hátíðlega athöfn á ljóðahátíð Salnum í dag. Hátíðin markaði jafnframt upphaf Daga ljóðsins sem standa  yfir í Kópavogi fram yfir helgi. Á ljóðahátíðinni var upplýst að enginn hlyti ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni

Í öðru sæti í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs var Ada Kozika, nemandi Álfhólsskóla, fyrir ljóð sitt Skógur í Póllandi og í þriðja sæti var Guðmundur Ólason, nemandi Hörðuvallaskóla, fyrir ljóð sitt Ský.

Þetta er í annað sinn í fjórtán ára sögu ljóðasamkeppninnar sem kennd er við Jón úr Vör sem dómnefnd ákveður að ekkert innsendra ljóða hljóti fyrstu verðlaun. Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, sagði að hún hygðist leggja til við ráðið að verðlaunaféð í ár, samtals 500 þúsund kr. legðist við verðlaunaféð að  ári.

Verðlaun hafa verið veitt samhliða í ljóðasamkeppni Ljóðstafs Jóns úr Vör og ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs síðustu fjögur árin. Í dómnefnd eru Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði (formaður) og Sindri Freysson, skáld og rithöfundur. Um 180 ljóð bárust í ljóðasamkeppni ljóðstafsins. Í  rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: „Dómnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu eftir mikla yfirlegu að meðal innsendra ljóða í ár, sem voru mun færri en á liðnum árum, væri ekki að finna ljóð að gæðum sambærilegum þeim sem hafa áður unnið þessa keppni. Dómnefndin leggur því til við Kópavogsbæ að Ljóðstafur Jóns úr Vör verður ekki veittur í ár, í stað þess leggist verðlaunaféð í ár við verðlaun næsta árs og megi því búast við öflugri þátttöku þá.“

Á ljóðahátíðinni fengu tíu aðrir nemendur viðurkenningu fyrir ljóð sín, þau: Hrafnkatla Bryngeirsdóttir , Salaskóla, Hulda M Aðalsteinsdóttir, Salaskóla, Hrönn Hjaltadóttir, Vatnsendaskóla, Eva Björg, Smáraskóla, Veigar Elí Grétarsson, Lindaskóla, Ásdís Sara Þórðardóttir, Kársnesskóla, Tristan Þór Traustason, Vatsnendaskóla, Páll Ísak, Hörðuvallaskóla, Þórdís, Hörðuvallaskóla, Ásgerður Magnúsdóttir, Álfhólsskóla, og Anna Yrsa Kolka Ásgeirsdóttir, Lindaskóla.

Á Dögum ljóðsins í Kópavogi mega bæjarbúar eiga von á því að mæta ljóðum á óvæntum stöðum, svo sem í sundi, í strætó, á húsveggjum eða á vefmiðlum bæjarins.