Íbúar völdu saunur og skautasvell

Alls verður 340 milljónum varið til framkvæmda í Okkar Kópavogi 2025-2028.
Alls verður 340 milljónum varið til framkvæmda í Okkar Kópavogi 2025-2028.

Saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og stækkun á leiksvæði við Menningarhúsin er meðal þess sem íbúar Kópavogs völdu áfram í kosningum í verkefninu Okkar Kópavogur 2024-2025.

Rafrænar kosningar í verkefninu hófust þann 23. janúar síðastliðinn og lauk á hádegi þann 4. febrúar. Á kjörskrá voru 34.982 íbúar og alls kusu 3540 íbúar, eða 10,1% kjósenda.

Kópavogur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem barnvænt sveitarfélag og var ungmennum fæddum árið 2011 og eldri boðið að taka þátt í kosningum. Ungmennin þurftu rafræn skilríki til að kjósa.

Alls komust 15 hugmyndir af samtals 67 áfram í kosningunni. Allt að 340 milljónum verður varið í framkvæmdirnar árin 2025-2027.

Verkefni sem voru valin í neðri byggðum

  • Sauna í Sundlaug Kópavogs
  • Vélfryst skautasvell í Kópavogsdal
  • Aðstaða til sjósunds á Kársnesi
  • Kópavogsdalur - jóla, skammdegislýsing
  • Bætti lýsing við gangbrautir
  • Leiksvæði við Menningarhúsin - endurnýjun og stækkun
  • Útivistarsvæði - ávaxtatré og berjarunnar
  • Sundlaug Kópavogs - yfirbyggður stigi við rennibraut
  • Minningarbekkir um Bryndísi Klöru

Verkefni sem voru valin í efri byggðum

  • Infrarauð sauna í Salalaug
  • Salalaug - yfirbyggður stigi við rennibraut
  • Minningarbekkir um Bryndísi Klöru
  • Sauna í Salalaug
  • Arnarnesvegur við Rjúpnasali - planta trjágróðri í mön
  • Kórinn - göngustígur að Þingum

Lesa meira um Okkar Kópavog og valin verkefni