Ný bæjarmálasamþykkt tekur gildi

Breytingar verða á nefndum með nýrri bæjarmálasamþykkt.
Breytingar verða á nefndum með nýrri bæjarmálasamþykkt.

Ný bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar gildi sitt þann 30. desember síðastliðinn en bæjarstjórn Kópavogs samþykkti hana á fundi sínum 26.nóvember. Í bæjarmálasamþykkt er gerð grein fyrir stjórn bæjarins og fundarsköpum bæjarstjórnar.

Breytingar verða á nefndarkerfi bæjarins með nýrri bæjarmálasamþykkt og verður kosið í nýjar nefndir á fyrsta fundi bæjarstjórnar árið 2025, 14.janúar.

Þau ráð/nefndir sem kjósa þarf í eru eftirfarandi:

  • Skipulags- og umhverfisráð - Sjö aðalfulltrúa og sjö til vara
  • Velferðar- og mannréttindaráð - Sjö aðalfulltrúa og sjö til vara
  • Innkaupanefnd - Fimm aðalfulltrúa og fimm til vara
  • Lýðheilsu- og íþróttanefnd - Fimm aðalfulltrúa og fimm til vara
  • Menningar- og mannlífsnefnd - Fimm aðalfulltrúa og fimm til vara

Þær nefndir sem hafa misst umboð sitt og verða ekki boðaðar til fundar að nýju eru eftirfarandi:

  • Skipulagsráð
  • Velferðarráð
  • Umhverfis- og samgöngunefnd
  • Jafnréttis- og mannréttindaráð
  • Lista- og menningarráð
  • Íþróttaráð
  • Hafnarstjórn

Nánar um bæjarmálasamþykkt og viðauka.