Nýr leik- og grunnskóli á Kársnesi

Kársnesskóli Skólagerði.
Kársnesskóli Skólagerði.

Samrekinn leik- og grunnskóli verður reistur við Skólagerði í stað gamla skólans.

Hönnun og bygging nýs leik- og grunnskóla við Skólagerði á Kársnesi í Kópavogi verður boðin út á næstu vikum. Skólabyggingin kemur í stað húsnæðis Kársnesskóla Skólagerði. Nýi skólinn verður samrekinn leik- og grunnskóli upp í 4. bekk.

Starfshópur skipaður fulltrúum nemenda, skólans, stjórnsýslunnar og flokka í bæjarstjórn Kópavogs leggur til að ný bygging verði sveigjanleg þannig að hægt verði að breyta húsnæðinu með fyrirhafnarlitlum hætti í takt við breytingar á starfinu. Þá taki hönnun byggingarinnar mið af áherslu á útinám og auðvelt sé að byggja við hana ef íbúaþróun á Kársnesi kallar á það. Hópurinn var við störf í vetur og skilaði af sér skýrslu sem höfð verður til hliðsjónar við útboð verksins.

Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær gamli skólinn verður rifinn en stefnt er að því að því verði lokið í september. Þess má geta að unnið er að uppsetningu að öryggismyndavélum við gamla húsið en borið hefur á skemmdarverkum á gömlu byggingunni.

Loks ber þess að geta að Kársnesskóli stendur fyrir kveðjuathöfn við gamla skólahúsið, sem er frá árinu 1957, í tengslum við vorhátíð skólans 5. júní.