Rebel Rebel hlýtur 5 milljóna kr. styrk frá Kópavogsbæ

Styrkþegar Lista- og menningarráðs ásamt ráðinu og forstöðumanni menningarmála.
Styrkþegar Lista- og menningarráðs ásamt ráðinu og forstöðumanni menningarmála.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar úthlutaði alls fimmtán milljónum til 26 umsækjenda vegna lista- og menningarverkefna sem koma til framkvæmda í bæjarfélaginu á næsta ári. Ráðinu bárust 56 umsóknir en úthlutanir voru kynntar í Salnum í Kópavogi í gær, fimmtudaginn 8. desember.

Hæsta styrk ráðsins kr. 5.000.000 hlaut Menningarfélagið Rebel Rebel til að standa fyrir listahátíðinni Hamraborg Festival í ágúst á næsta ári. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin og hefur henni vaxið fiskur um hrygg frá ári til árs. Aðstandendur hátíðarinnar eru þau Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason, Joanna Pawlowska, Sveinn Snær Kristjánsson og Snæbjörn Brynjarsson.

Y gallerý hlaut kr. 1.500.000 til sýningarhalds í Olís bensínstöðinni við Hamraborg en gallerýið hefur fest sig í sessi sem eitt framsæknasta og óvenjulegasta gallerý landsins. Ævintýraleiksýning Guðjóns Davíðs Karlssonar og Þrastar Leó Gunnarssonar um álfa hlaut kr. 1.000.000 en hugmynd þeirra er að sýna fram á möguleika Salarins sem leikhúsvettvangs auk þess að gleðja og skemmta börnum.

Úlfur Eldjárn hlaut kr. 600.000 styrk til að ljúka gerð kvikmyndar um hljóðverkið Hamraborgin - Óður til hávaða sem flutt verður í Salnum á Safnanótt í febrúar 2023. En verkið var eitt fjögurra sem frumflutt var í Salnum á keppni um hljóðverk í Kópavogi sem Salurinn stóð fyrir.

Aðrir sem hlutu styrki frá ráðinu frá ráðinu voru:

  • Kvennakór Kópavogs til æfinga og tónleikahalds.
  • Samkór Kópavogs til æfinga og tónleikahalds.
  • Karlakór Kópavogs til æfinga og tónleikahalds.
  • Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, Johanna Gossner, Mercedes Bravo og Rannveig Marta Sarc fyrir tvenna tónleika í Salnum á Óperudögum.
  • Peter Máté og Kristinn Sigmundsson til tónleikahalds fyrir eldri borgara í Kópavogi og tónleika í Salnum þar sem m.a. verður frumfluttur sönglagaflokkur tileinkaður Kristni eftir Tryggva M. Baldvinsson við ljóð Hannesar Péturssonar.
  • Íslenska einsöngslagið fyrir síðari hluta tónleikaraðarinnar sem haldnir eru í Salnum.
  • Örn Árnason og Jónas Þórir fyrir ókeypis tónleika fyrir eldri borgara í Kópavogi tileinkaða minningu Sigfúsar Halldórssonar.
  • Bjarni Lárus Hall til tónlistarflutnings fyrir eldri borgara í Kópavogi.
  • Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir fyrir stofutónleikana Níu ljóð úr Þorpinu eftir Jón úr Vör.
  • Tímaritið Són og Óðfræðifélagið Boðn fyrir málþing um bókmenntagagnrýni í fjölmiðlum, þá sérstaklega ljóðlist.
  • Catherine Maria Stankiewicz til undirbúnings og listrænnar tónlistaruppákomu á leikskólum í Kópavogi.
  • Hanna Jónsdóttir fyrir gerð textaverka utanhúss í útjaðri Kópavogs og smiðjum þeim tengdum.
  • Bylgjur í báðar áttir ehf. Þau Ragnheiður Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson til að halda þrenna tónleika í heimahúsum í þremur hverfum Kópavogsbæjar.
  • Hólmfríður Hafliðadóttir og Magnús Thorlacius fyrir einleikinn Flokkstjórinn sem fluttur verður nokkrum sinnum utandyra í Grandahvarfi.
  • Ólafur Freyr Birkisson fyrir útgáfutónleika ásamt fleirum á nýjum, íslenskum söngvaflokk í Salnum.
  • Björg Árnadóttir til að halda ritsmiðjur í Bókasafni Kópavogs sem ætlað er að þjálfa sköpunarhæfni og mynda félagsleg tengsl ólíkra hópa.
  • Sirkus Ananas til að bjóða upp á sirkussýningar og sirkuskennslu fyrir áhorfendur.
  • María Sól Ingólfsdóttir og félagar til tónleikahalds í Kópavogskirkju á föstudaginn langa.
  • Sunna Gunnlaugsdóttir ásamt átta öðrum konum sem halda tónleika á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars þar sem flutt verða tónsmíðar eftir íslenskar konur frá síðustu öld.
  • Menntaskólinn í Kópavogi til að setja upp Litlu Hryllingsbúðina á 50 ára afmæli skólans.
  • Sögufélag Kópavogs rekstrarstyrk til margvíslegra mála, m.a. myndamorgna og fyrir skipulagðar göngur um Kópavog.
  • Tónskáldafélag Íslands fyrir tónleika- og viðburðarhald á Myrkum músíkdögum í Salnum og Gerðarsafni.

Auk þessara styrkja styður lista- og menningarráð Kópavogsbæjar við fjölbreytta menningarstarfsemi sem bæjarbúum stendur til boða án endurgjalds. M.a. Barnamenningarhátíð, Vetrarhátíð, Ljóðstaf Jóns úr Vör og sameiginlegra viðburða sem Menningarhúsin í Kópavogi skipuleggja. Þá velur ráðið árlega bæjarlistamann Kópavogs með framlagi að upphæð 1,5 milljónum króna og leggur til verðlaunafé fyrir myndlistarverðlaun sem kennd eru við Gerði Helgadóttur, listaverkakaup Gerðarsafns, nýsköpun í tónsmíðum sem Salurinn stendur fyrir og tónleikaröðum eins og Tíbrá og sumardjass.