Skólabörn í bíó

Kvikmyndasýning í samstarfi Menningarhúsanna í Kópavogi, RIFF og Smárabíó.
Kvikmyndasýning í samstarfi Menningarhúsanna í Kópavogi, RIFF og Smárabíó.

Tæplega 900 glaðbeittir grunnskólanemendur í Kópavogi mættu í Smárabíó 30/9 og 1/10 á kvikmyndasýningar á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi í samstarfi við RIFF og Smárabíó. Nemendum í 4. og 5. bekk var boðið að sjá norsku verðlaunamyndina Los Bando og 9. og 10. bekk var boðið að sjá annað hvort bresku verðlaunamyndina Old Boys eða sigurmynd EFA í ár, hina hollensku The Fight Girl.

Sýning þessi var í tengslum við RIFF sem er nú haldið í 16. sinn og fengu grunnskólanemendur Kópavogsbæjar hér nasasjón af því hvernig er að sækja kvikmyndahátíðir eins og RIFF. Að sýningu lokinn var svokallað Q&A með Gunnari Helgasyni, rithöfundi, leikara og leikstjóra, og Haraldi Ara Karlssyni, aðstoðarleikstjóra Íslands, þar sem umræðuefnin voru m.a. hvernig bíó verður til, hvernig bækur verða að bíómyndum og hvernig unnið er með myndmálið. Krakkarnir voru allir mjög áhugasamir um að vita meira um kvikmyndagerð og nýttu tækifærið til að spyrja Gunnar og Harald Ara spjörunum úr.

 

Menningarhúsin í Kópavogi vildu með þessu samstarfi sýna grunnskólanemendum Kópavogs hve fjölbreyttur heimur kvikmyndanna getur verið og um leið gefa þeim smá innsýn inn í heim kvikmyndagerðar.

Verkefnið var styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.