Styrkir vegna námskostnaðar og verkfæra-og tækjakaupa fatlaðs fólks

Kópavogsbær vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27. grein laga um málefni fatlaðs fólks.
Bænum er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.
 
Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði ásamt greinargerð til þjónustuvers Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 200 Kópavogur. Eyðublaðið má nálgast í þjónustuveri Kópavogsbæjar.
 
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2012. Félagsþjónusta Kópavogs, Fannborg 4, 200 Kópavogur