Þarf jafnara jafnrétti?

Frá göngu gegn einelti sem haldin var í skólum í Kópavogi í nóvember 2014.
Frá göngu gegn einelti sem haldin var í skólum í Kópavogi í nóvember 2014.

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs efnir til afmælismálþings miðvikudaginn 6. maí klukkan 13 til 16.30. Málþingið er haldið í Salnum í Kópavogi. Karlar og femínismi, forréttindi og hversdagsleiki er meðal þess sem rætt verður á málþinginu þar sem rýnt er í jafnréttismál í samtímanum frá breiðu sjónarhorni. Þá verður ný jafnréttis- og mannréttindastefna bæjarins kynnt en hún var samþykkt í bæjarstjórn í liðinni viku. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, setur málþingið opnar sýningu um frumkvöðla á meðal kvenna í Kópavogi í anddyri Salarins. Sýningin er sett upp að tilstuðlan afmælisnefndar Kópavogsbæjar í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna.

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fagnar 40 ára afmæli á árinu en Kópavogur var fyrst sveitarfélaga til að setja nefnd um jafnréttismál á laggirnar.

Dagskrá málþingsins er sem hér segir:

 Ragnheiður Bóasdóttir formaður jafnréttis- og mannréttindaráðs  kynnir jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar

Hjálmar Gunnar Sigmarsson, kynjafræðingur, flytur erindið: Karlar og femínismi - Hlutverk, reynsla og ábyrgð karla í jafnréttisbaráttunni.

Auður Magndís Auðardóttir,félags- og kynjafræðingur flytur erindið:  Um forréttindi  og hversdagsleikann.

Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi flytur erindið: Þarf jafnara jafnrétti.

Þá tekur til máls Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra, sendiherra og ritstjóri.

Þau munu síðan ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur taka þátt í pallborðsumræðum undir stjórn Þóru Arnórsdóttur fréttakonu. 

Theodóra Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs slítur málþinginu kl. 16.15. Boðið verður upp á veitingar í hléi og tónlistaratriði frá Skólahljómsveit Kópavogs og Kvennakór HÍ.