Vel heppnuð Vináttuganga

Vináttuganga í Kópavogi 2018.
Vináttuganga í Kópavogi 2018.

Vel tókst til í Vináttugöngu sem fram fór í skólahverfum í Kópavogi á baráttudegi gegn einelti, fimmtudeginum 8.nóvember. Gangan fór nú fram í sjötta sinn og var boðið upp á dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna. 

Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni  leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.

Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.

Vináttubangsinn Blær var að þessu sinni staddur í Vatnsendahverfi en börn í Kópavogi þekkja hann vel frá Vináttuverkefni Barnaheilla.