Vináttuganga í Kópavogi

Frá baráttudegi gegn einelti í Kópavogi 2017.
Frá baráttudegi gegn einelti í Kópavogi 2017.

Vináttuganga í skólum Kópavogs fer fram fimmtudaginn 8. nóvember, á baráttudegi gegn einelti. Gangan fer nú fram í sjötta sinn og er sem fyrr dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna. 

Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni  leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.

Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni í fyrra og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.