Vináttuganga í skólum Kópavogs fer fram föstudaginn 8.nóvember, á baráttudegi gegn einelti. Gangan fer nú fram í sjöunda sinn og er sem fyrr á dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna.
Efnt verður til þriggja daga íþróttaveislu í Kópavogi í júnílok 2020. UMFÍ skipuleggur íþróttaveisluna í samvinnu við UMSK og íþróttafélög í Kópavogi. Kópavogsbær er fyrst sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til að vera gestgjafar íþróttaveislunnar.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs undirritaði í dag yfirlýsingu borgar- og bæjarstjóra hvaðanæva að um skuldbindingu baráttu fyrir réttindum barna.
Mælaborð sem ætlað er að tryggja betri yfirsýn yfir velferð barna á Íslandi vann í dag alþjóðleg verðlaun UNICEF (Child Friendly Cities Initiative Inspire Awards) fyrir framúrskarandi lausnir og nýsköpun í nærumhverfi barna.