Aðventuhátíð í Kópavogi

Á Aðventuhátíð í Kópavogi er tendrað á jólatré bæjarins.
Á Aðventuhátíð í Kópavogi er tendrað á jólatré bæjarins.

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin laugardaginn 26.nóvember en við það tilefni verða ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin tendruð.

Kynnir á jólatrésskemmtun er Salka Sól. Jólasveinar bregða sér í bæinn og dansa í kringum jólatréð. Skólahljómsveit Kópavogs og Skólakór Hörðuvallaskóla flytja jólatónlist frá klukkan 15:45 en ljósin á jólatrénu verða tendruð kl. 16.

Frá klukkan 13 verður boðið upp á fjölbreytta jóladagskrá fyrir alla fjölskylduna á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Salnum. Jólasmiðjur, jólamarkaður, lifandi tónlist og notaleg aðventustemning en ókeypis er á alla viðburði í tilefni dagsins.

Tónlistaratriði í flutningi Barnakórs Smáraskóla, Flautukórs frá Tónlistarskólanum í Kópavogi, Kammerkvartettsins, Kvennakórs Kópavogs og Samkórs Kópavogs.

Bókasafn Kópavogs | 13 – 16
Gjafapoka- og merkimiðasmiðja með Hönnu Jónsdóttur

Jólaperl

Gerðarsafn | 13 – 16
Pólskt jólaskraut með Wiolu Ujzadowska og Klaudiu Migdał

Náttúrufræðistofa Kópavogs | 13 - 16

Jólakötturinn. Fróðleikur og fjör kl. 13:30 / 14:30 og 15:30

Jólaskúlptúrar með Guðlín Theódórsdóttur og Kötlu Björk Gunnarsdóttur

Salurinn - fordyri | 13 - 16
Jólamarkaður og lifandi tónlist
Gefðu okkur auga. Ljóslistaverk verður til

Útisvæði menningarhúsanna | 15:45 – 17

Skólahljómsveit Kópavogs
Skólakór Hörðuvallaskóla

Jólatrésskemmtun með Sölku Sól og jólasveinum