- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin við hátíðlega athöfn kl. 17.
Jólasveinar bregða á leik, dansað verður í kringum jólatréð og fjöldi krakka í Kópavogi blása í lúðra og syngja falleg og skemmtileg jólalög.
Boðið verður upp á fjölbreyttar aðventusmiðjur frá klukkan 15. Pólsk brúðusmiðja, fóðurkönglagerð fyrir fugla, jólagjafasmiðjur, jólatónlist og lesið verður upp úr jóladagatali sem Eygló Jónsdóttir rithöfundur skrifaði upp úr hugmyndum barna í Kópavogi.
Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn. Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög. Og að sjálfsögðu mæta jólasveinar á svæðið og leiða dans í kringum jólatréð ásamt vinkonu sinni henni Rófu.
Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs flytja fallega jólatónlist á aðventutónleikum á bókasafninu. Í forsal Salarins mun bæjarlistamaður Kópavogsbæjar, Kristofer Rodriguez Svönuson, trommu- og slagverksleikari bjóða upp á jólajazz ásamt Daníel Helgasyni gítarleikara og Hannesi Helgasyni hljómborðsleikara og Kvennakór Kópavogs flytur kyrrláta vetrartóna.
Verið öll hjartanlega velkomin
Dagskrá:
Á útisvæði menningarhúsanna
15:00 - 16:30 Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn.
15:00 - 16:30 Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög.
16:30 Jólalagasveifla með Skólahljómsveit Kópavogsbæjar
Kórar úr Smáraskóla og Hörðuvallaskóla syngja jólalög ásamt Ástvaldi Traustasyni á harmonikku. Stjórnendur kóranna eru Ásta Magnúsdóttir og Ása Valgerður Sigurðardóttir.
17:00 Ásdís Kristjansdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar. Kynnar eru undraverur úr Jólalundi. Jólasveinar mæta og slá upp dansiballi í kringum jólatréð.
Bókasafn Kópavogs
15:00-16:30 Skreytum jólatré Gloríu
15:00-16:30 Jóladýr og jólaverur – föndur
15:00-16:30 Jólagjafasmiðja 11+ – þrívíddarpennar og perluarmbönd
15:15 / 15:45 / 16:15 Jólasögustund með Eygló Jónsdóttur
16:00 Nemendur í Tónlistarskóla Kópavogs spila jólalög
Jólaratleikur og innpökkunarstöð á opnunartíma safnsins.
Gerðarsafn
14:00-16:00 Pólsk brúðusmiðja með Styrmi Erni Guðmundssyni og Agötu Mickiewicz
15:00-16:30 Dj. Sunna Ben þeytir jólaskífum og skemmtilegri músík á Krónikunni
Sýningarnar Gerður grunnsýning, Óstöðugt land og Parabóla eru opnar frá 12:00 - 18:00.
Náttúrufræðistofa
15:00-16:30 Fóðurkönglar fyrir fugla- Fræðsla og föndur með líffræðingnum Hlyni Steinssyni.
Grunnsýning Náttúrufræðistofu verður opin frá 11:00 - 17:00.
Salurinn
15:00: Fönkskotinn jólajazz með bæjarlistamanninum Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverksleikara, Daníel Helgasyni, gítarleikara og Hannesi Helgasyn, hljómborðsleikara.
16:00: Vetrartónar með Kvennakór Kópavogs undir stjórn Margrétar Eir.
Við hlökkum til að sjá ykkur í hátíðarskapi