Afgreiðsla velferðarsviðs opnar í Vallakór 4

Velferðarsvið er til húsa í Vallakór 4.
Velferðarsvið er til húsa í Vallakór 4.

Afgreiðsla velferðarsviðs opnar í Vallakór 4 mánudaginn 24. febrúar.

Skrifstofur sviðsins fluttu í áföngum í Vallakór á árunum 2023 til 2024 og nú er framkvæmdum við afgreiðslu og viðtalsrými sviðsins lokið.

Opnunartími afgreiðslunnar er frá kl. 08.00 til 15.00 mánudaga til fimmtudaga og til klukkan 13.00 föstudaga.

Afgreiðsla velferðarsviðs hefur verið til húsa að Digranesvegi 1 frá því í ágúst 2023 þegar flytja þurfti starfsemi sviðsins úr Fannborg 6 vegna óheilbrigðs vinnuumhverfis.