Horft í norðausturátt frá Arnarnesvegir. Myndir/Vilhelm Gunnarsson, Vegagerðin.
Framkvæmdum við Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram en áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Uppsetning á vegriði og hljóðvegg stendur yfir á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut. Unnið er að undirslætti nýrrar göngubrúar yfir Arnarnesveg. Ný undirgöng eru í byggingu við Rjúpnaveg og í vegstæði Arnarnesvegar er meðal annars verið að setja upp ljósastaura. Um 50 manns starfa við verkið; smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar.
Unnið er að frágangi nýju brúarinnar yfir Breiðholtsbraut þar sem verið er að setja upp vegrið og hljóðvegg sem skilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni. Einnig er unnið við undirslátt nýju göngubrúarinnar yfir Arnarnesveg til móts við Turnahvarf. Gert er ráð fyrir að brúin verði steypt fyrir páskana.
Við Rjúpnaveg eru ný undirgöng í byggingu undir Arnarnesveg. Þau eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum sem þegar hafa verið settar á sinn stað. Nú stendur yfir frágangur eininganna og uppsláttur fyrir stoðveggjum sem koma við enda undirganganna.
Nánar á vef Vegagerðarinnar