Glæsilegur hópur fundaði á Barnaþingi 2025.
Börn úr öllum skólum í Kópavogi komu saman á árlegu Barnaþingi. Hver skóli sendi þrjá til fjóra fulltrúa auk fulltrúa ungmennaráðs þannig að um 40 börn voru saman komin til að ræða tillögur barna í Kópavogi.
Í aðdraganda Barnaþings voru haldin Skólaþing í skólum bæjarins. Þau völdu hvert um sig tillögur til að ræða á Barnaþinginu, margar voru samhljóða og því voru það þrettán tillögur sem voru teknar til umfjöllunar.
Í hádeginu var boðið upp á pizzur og þá ávarpaði bæjarstjóri, Ásdís Kristjánsdóttir barnaþingmenn og þakkaði þeim fyrir sitt framlag.
Að loknu Barnaþingi eru tillögurnar sem voru til umræðu sendar á ný til skóla í Kópavogi og gefst nemendum þá kost að kjósa á milli þeirra. Þær tillögur sem hljóta mest fylgi verða lagðar fyrir bæjarstjórn í maí.
Tillögur skóla á Barnaþing Kópavogs 2025 sem ræddar voru á þinginu:
- Frítt í Strætó fyrir öll börn í Kópavogi.
- Ísbúð á Kársnesi
- Morgunmatur í boði í öllum skólum í Kópavogi.
- Sérdeildir/ fjölbreytta sérfræðinga í alla skóla.
- Virkja nemendaráð meira í öllum skólum.
- Vinaskólar í Kópavogi – Heimsóknir á milli skóla.
- Halda hátíð í Kópavogi - eins og Skrekkur í Reykjavík
- Bæta skólalóðir - Skemmtilegar skólalóðir.
- Fjölga íþróttatímum eða lengja þá.
- Fjölga kennslustundum í félagslegum samskiptum.
- Fleiri opnanir í félagsmiðstöðvum.
- Göt í stundatöflu í upphafi og lok dags
- Fleira starfsfólk í frímínútum sem fylgist með