Bjóðum sumarið velkomið

Sumar í Kópavogi.
Sumar í Kópavogi.

Sumarstörf hjá Kópavogsbæ eru laus til umsóknar.

Þann 1. febrúar hóf Kópavogsbær auglýsa fyrstu sumarstörfin fyrir sumarið 2023. Síðasta sumar voru um 500 einstaklingar sem komu til starfa hjá bænum og má reikna með álíka fjölda í ár. Störfin eru fyrir öll þau sem fædd eru árið 2005 eða fyrr og sérstök áhersla lögð á að einstaklingar í námi fái vinnu.

Auglýsingar birtast á Alfreð og heimasíðu Kópavogsbæjar á tímabilinu 1. febrúar til 31. mars. Um er að ræða í kringum 60 ólík störf og má þar nefna störf í leikskólum, vinnuskóla, sundlaugum og þjónustustörf í sumarafleysingum.

Þau sem ætla að sækja um störfin eru hvött til að vera á tánum þar sem ekki verður tekið við umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur. Eftir að umarsóknarfresti lýkur verður hægt að skrá sig á biðlista sumarstarfa. 

Sumarstörfin - lýsingar