Bókasafnið fagnar sjötugsafmæli

Bókasafn Kópavogs verður 70 ára í mars.
Bókasafn Kópavogs verður 70 ára í mars.

Bókasafn Kópavogs fagnar 70 ára afmæli þann 15. mars  en safnið var stofnað árið 1953.  Marsmánuður verður helgaður afmælinu. 

„Við ætlum að halda upp á afmælið með pompi og prakt og verður marsmánuður á safninu tileinkaður afmælinu“, segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. Ljósmyndasýning með myndum úr starfsemi safnsins í gegnum árin verður sett upp, auk þess sem gamlir munir ganga í endurnýjun lífdaga.

„Samfélagsmiðlar safnsins munu fyllast af ljósmyndum, viðtölum við Kópavogsbúa á öllum aldri og öðru skemmtilegu tengt sögu safnsins og verður gaman að rifja upp starfsemi síðustu áratuga með íbúum bæjarins“, bætir Lísa við. Boðið verður upp á köku og kaffi á sjálfan afmælisdaginn ásamt fjölbreyttum viðburðum. Má þar nefna jóga fyrir gesti og gangandi, sögustund fyrir leikskólabörn, tónleika og ljóðaupplestra og að sjálfsögðu köku á báðum söfnum. Alla afmælisvikuna verður boðið upp á skemmtilega og flotta viðburði á hverjum degi og verður dagskrá auglýst þegar nær dregur. „Við hlökkum til að fagna þessum merku tímamótum með bæjarbúum og vonum að sem flestir taki þátt í dagskránni með okkur“, segir Lísa að lokum.