Skóflustunga að Fossvogsbrú

Skóflustunga tekin að Fossvogsbrú.
Skóflustunga tekin að Fossvogsbrú.

Framkvæmdir við landfyllingar og sjóvarnir tengdum byggingu Fossvogsbrúar hófust af fullum krafti á Kársnesi í Kópavogi í dag, föstudaginn 17.janúar, þegar tekin var skóflustunga við Vesturvör á Kársnesinu. 

Nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, tók fyrstu skóflustunguna ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs, Einari Þorsteinssyni borgarstjóra Reykjavíkur,  Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar og Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna.

„Fossvogsbrúin er mikilvæg tenging inn á vestanvert Kársnesið og því mikið hagsmunamál fyrir Kópavog. Með tilkomu Fossvogsbrúar er verið að tengja Kópavogsbúa nær stærstu vinnustöðum landsins, við háskóla og framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir að 10.000 manns muni ferðast daglega um brúna frá Kópavogi og nærliggjandi sveitarfélögum. Ábatinn er því mikill fyrir höfuðborgarsvæðið allt,” sagði Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri við tækifærið. 

Fossvogsbrúin er hluti af Samgöngusáttmálanum og er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu. Brúin tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík með afgerandi hætti. Áætluð verklok eru 1. nóvember 2026 fyrir þennan hluta verksins en gert er ráð fyrir að Fossvogsbrú verði tilbúin um mitt ár 2028.

Þess má geta að verksamningur milli Vegagerðarinnar og verkakafyrirtækisins Gröfu og grjóts var undirritaður í síðustu viku í kjölfar útboðs í nóvember 2024.