Viðburðir í vetrararfríi

Kort og kórónur er heiti á smiðju í Bókasafni Kópavogs mánudaginn 24.febrúar.
Kort og kórónur er heiti á smiðju í Bókasafni Kópavogs mánudaginn 24.febrúar.

Fjölbreytt dagskrá er í menningarhúsum Kópavogsbæjar í vetrarfríi grunnskólanna 24. og 25. febrúar. 

Mánudagurinn 24. febrúar

Kort og kórónur á Bókasafninu kl. 11 – 13

  • Komdu og föndraðu kórónur og kort eða jafnvel bókamerki, og skreyttu með úrklippum úr gömlum bókum.
  • Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir
  • Smiðjan verður haldin í Tilraunastofunni á fyrstu hæð safnsins.

Vísindasmiðja Háskóla Íslands í Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 13 – 15

  • Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður hjá okkur í vetrarfríinu með lifandi og skemmtileg vísindasmiðju fyrir forvitin börn á öllum aldri. Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum með gagnvirkum og lifandi hætti, styðja við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda og miðla vísindalegri þekkingu til samfélagsins.

Þriðjudagur 25. febrúar

Grímusmiðja á Bókasafninu kl. 11 – 13

  • Komdu og búðu þér til grímu í vetrarfríinu!
  • Boðið verður uppá grímuföndur; glimmerlím, fjaðrir og alla heimsins liti til að lífga upp á vetrarfríið.
  • Smiðjan verður á 1. hæð Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu.
    Allur efniviður og leiðbeiningar á borðum á staðnum.

Leikur að ljósi og litum I Listasmiðja í Gerðarsafni 13 – 15

  • Komið að gera tilraunir með ljós og litaðar filmur og búum til listaverk úr öllum regnbogans litum! Jóhanna Ásgeirsdóttir verður með listsmiðju fyrir börn og fjölskyldur þeirra í vetrarfríi grunnskólanna þriðjudaginn 25. febrúar kl 13:00 í Gerðarsafni. Efniviður verður á staðnum og þátttaka í smiðjunni er gestum að kostnaðarlausu. Hlökkum til að sjá ykkur!

Spilastuð fyrir ungmenni á Bókasafninu með Spilavinum kl. 14 – 16

  • Komdu að spila í vetrarfríinu! Spilavinir kíkja í heimsókn í ungmennadeildina á 3. hæð með glás af spilum. Spilakennarar verða á staðnum, tilbúnir að leiðbeina þátttakendum.

Við hvetjum ykkur til þess að koma og eiga gæðastund hér í menningarhúsunum.