Fyrsta gjalddagi fasteignagjalda er 1.febrúar og sá síðasti 1.nóvember.
Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til nóvember. Veittur er staðgreiðsluafsláttur ef gjöld í heild eru greidd fyrir 17.febrúar og veittur er afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega sem búa í eigin íbúð.
Helstu upplýsingar um fasteignagjöld í Kópavogi:
- Alls eru 10 gjalddagar, fyrsti 1. febrúar, sá síðasti 1. nóvember.
- Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.
- Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd fyrir 17. febrúar 2026.
- Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka:
0130–26–74, kt. 700169–3759. Í skýringu má setja: Fasteignagjöld
- Ekki verða sendir út álagningarseðlar á pappírsformi en hægt er að nálgast nýjustu álagningarseðla á island.is og þjónustugátt
Afsláttur af fasteignaskatti
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð, og er hann reiknaður út frá álagningu 2025 vegna skatttekna ársins 2024, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 og 2.8) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10) Ekki þarf því að sækja um hann sérstaklega.
100% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 7.440.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur allt að 9.506.000 krónur.
75% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 7.440.001 - 7.563.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 9.506.001 – 9.790.000 krónur.
50% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 7.563.001 – 7.687.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 9.790.001 - 10.245.000 krónur.
25% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 7.687.001 – 7.807.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 10.245.001 - 10.688.000 krónur.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir
Vinsamlegast athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar heldur verður einungis stofnuð krafa í heimabanka með sama hætti og áður. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu. Ekki er tekið á móti peningum í afgreiðslu Kópavogsbæjar né kortum, einungis hægt að millifæra inn á reikning bæjarins. Þeir sem ekki hafa rafræn skilríki geta óskað eftir afriti af álagningarseðli með því að senda tölvupóst á netfangið: thjonustuver(hjá)kopavogur.is.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 441 0000 og fyrirspurnir má senda á netfangið: thjonustuver(hja)kopavogur.is