Frá stjórnendadegi Kópavogsbæjar.
Umbótaverkefni sem bæta hag starfsfólks og íbúa, tækifærin í gervigreind og breytingarstjórnun er meðal þess sem var til umræðu á stjórnendadegi hjá Kópavogsbæ. Gestur Pálmason, stjórnendaþjálfari og markþjálfi hjá Complete Coherence var gestafyrirlesari dagsins og fór hann meðal annars yfir bjargráð stjórnenda til að líða vel í síbreytilegu umhverfi.
Þetta er í fjórða sinn sem haldinn er stjórnendadagur hjá Kópavogsbæ og sá fyrsti eftir að skipulagsbreytingar urðu á stjórnsýslu bæjarins. Í tengslum við þær voru stofnaðar skrifstofur um verkefni stjórnsýslu- og fjármálasviðs og skipa stjórnendur þeirra framkvæmdastjórn ásamt sviðsstjórum fagsviða og bæjarstjóra.
„Markmið skipulagsbreytinganna var bætt þjónusta við íbúa, aukin skilvirkni og skýrari hlutverk og ábyrgð. Þannig má segja að dagskrá á stjórnendadeginum hafi að miklu leyti endurspeglað áherslur breytinga í stjórnsýslu sem kynntar voru fyrir ári síðan og hafa gefist vel,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Í nýrri framkvæmdastjórn sitja auk bæjarstjóra: Pálmi Þór Másson, bæjarritari, Védís Hervör Árnadóttir stýrir skrifstofu umbóta og þróunar, Loftur Steinar Loftsson stýrir skrifstofu þjónustu, Sigríður Þrúður Stefánsdóttir stýrir skrifstofu mannauðs- og kjaramála og Sindri Sveinsson stýrir skrifstofu fjármála- og áhættustýringar. Sviðsstjórar fagsviða eru: Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs og Sigrún Þórarinsdóttur sviðsstjóri velferðarsviðs.
Um 160 manns gegna stjórnendastörfum hjá Kópavogsbæ og hefur stjórnendadagurinn mælst vel fyrir.
„Það er afar góður hópur sem gegnir stjórnendastörfum hjá Kópavogsbæ og þarft og þakklátt að hópurinn hittist, bæði til þess að hlusta en ekki síður til þess að ræða saman,“ segir Ásdís.

Framkvæmdastjórn Kópavogsbæjar.