Sigga Ózk úr dómnefnd, Freyja Bjarnadóttir sem vann söngkeppnina og Lovísa Gísladóttir sem var í öðru sæti.
Árleg Söngkeppni Félkó fór fram í Salnum miðvikudaginn 25.febúar við afar góðar undirtektir og ríkti þar mikil stemning. Sigurvegari keppninnar var Freyja Bjarnadóttir úr félagsmiðstöðinni Þebu sem flutti lagið All I Ask með Adele. Í öðru sæti hafnaði Lovísa Gísladóttir úr félagsmiðstöðinni Ekkó með lagið There Are Worse Things I Could Do úr söngleiknum Grease.
Björg Baldursdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, setti keppnina og afhenti verðlaun, ásamt Magnúsi Inga Árnasyni, formanni Ungmennaráðs Kópavogs. Söngkeppnin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af árlegum hápunktum frístundastarfs félagsmiðstöðva í Kópavogi. Dómnefndina skipuðu þau Daníel Alvin, Sigga Ózk og Bára Katrín Jóhannsdóttir.
Freyja Bjarnadóttir og Lovísa Gísladóttir munu fyrir hönd félagsmiðstöðva í Kópavogi taka þátt í Söngkeppni Samfés sem fram fer 9. maí í Laugardalshöll og verður í beinni útsendingu á RÚV.
Við þökkum öllum keppendum fyrir frábæran flutning og einstaklega glæsilegt kvöld.
Á myndinni eru þátttakendur ásamt dómnefnd, fulltrúum menntasviðs og forseta bæjarstjórnar Kópavogs, Björgu Baldursdóttur.
