Settir eru upp gámar fyrir jólatré og flugeldarusl á nokkrum stöðum.
Settir verða upp gámar á fimm stöðum í Kópavogi fyrir flugeldarusl, líkt og áður. Á sömu stöðum verða settir upp gámar eingöngu fyrir jólatré. Gámarnir verða aðgengilegir frá 31.desember til og með 10.janúar.
Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum:
Kársnes: Við grenndargámastöðina á Borgarholti
Digranes: Við grenndargámastöðina við Íþróttahúsið Digranes
Smárahverfi: Við grenndargámastöðina við Kópavogsvöll
Linda- og Salahverfi: Bílastæði við Salalaug / Íþróttahúsið Versali
Kóra-, Þing- og Hvarfahverfi: Við malarplanið við Vallakór 8
Tveir gámar verða á hverjum stað merktir hvorum úrgangsflokk, annars vegar flugeldarusli og hinsvegar jólatrjám. Í gámana á eingöngu að fara það sem merkingin segir til um.
Kort sem sýnir staðsetningu gámanna:
