Gámar fyrir jólatré eru aðgengilegir frá 31.desember.
Settir verða upp gámar á fimm stöðum í Kópavogi fyrir flugeldarusl, líkt og áður. Á sömu stöðum verða settir upp gámar fyrir jólatré. Gámarnir verða aðgengilegir frá 31.desember til og með 8.janúar.
Tveir gámar verða á hverjum stað merktir hvorum úrgangsflokk, annars vegar flugeldarusli og hinsvegar jólatrjám. Í gámana á eingöngu að fara það sem merkingin segir til um.
Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum:
Kársnes: Við grenndargámastöðina á Borgarholti
Digranes: Við grenndargámastöðina við Íþróttahúsið Digranes
Smárahverfi: Við grenndargámastöðina við Kópavogsvöll
Linda- og Salahverfi: Bílastæði við Salalaug / Íþróttahúsið Versali
Kóra-, Þing- og Hvarfahverfi: Við malarplanið við Vallakór 8
Staðsetning gáma á korti
