Geometría í Gerðarsafni

Nína Tryggvadóttir er meðal þeirra sem á verk á sýningunni Geometría.
Nína Tryggvadóttir er meðal þeirra sem á verk á sýningunni Geometría.

Sýningin Geometría opnar í Gerðarsafni laugardaginn 8. október kl. 15. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, opnar sýninguna.

Geometría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geometrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.

Listamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir, Ásmundur Sveinsson, Benedikt Gunnarsson, Eiríkur Smith, Eyborg Guðmundsdóttir, Gerður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Benediktsson, Hafsteinn Austmann, Hjörleifur Sigurðsson, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Málfríður Konráðsdóttir, Nína Tryggvadóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Svavar Guðnason, Sverrir Haraldsson, Valgerður Enard Hafstað, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.

Sýningarstjórar sýningarinnar eru Brynja Sveinsdóttir og Cecilie Gaihede og sýningarhönnun var í höndum Hreins Bernharðssonar og Studio Studio.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook: Opnun | Geometría | Facebook

Bókin Abstrakt geometría kemur út á opnun sýningarinnar með megintextum eftir Ásdísi Ólafsdóttur og Sjón. Að útgáfunni stendur Knútur Bruun og er bókinni ritstýrt af Ólafi Kvaran, sem jafnframt skrifaði æviágrip listamannanna. Veröld er útgefandi bókarinnar.

Í tengslum við sýninguna og útgáfu bókarinnar fer fram málþingið Loftsteinn í íslenskt menningarlíf sunnudaginn 9. október kl. 14. Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur og Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur fjalla um innkomu geometríu í íslenskt menningarlíf á sjötta áratugnum og Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns leiðir samtalið.

Sýningin stendur út janúar.