Gönguskíðaspor í Fossvogi

Tæki til að leggja gönguskíðaspor.
Tæki til að leggja gönguskíðaspor.

Kópavogsbær hefur fest kaup á tæki til að gera spor fyrir gönguskíði og var tækið prófað í Fossvogsdal í gærkvöldi, þar sem er nú flott braut sem lögð var af Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Þetta þýðir að hægt verður að leggja góð spor í landi Kópavogs þegar aðstæður leyfa.