Götuganga í sumarblíðu

Götugangan 2025 fór fram þriðjudaginn 13.maí.
Götugangan 2025 fór fram þriðjudaginn 13.maí.

Götuganga Virkni og vellíðan í Kópavogi fór fram mikilli veðurblíðu í dag, þriðjudaginn 13.maí. Gangan er nú haldin í þriðja sinn og tóku tæplega 300 þátt í göngunni sem hófst og lauk á Kópavogsvelli. Í tilefni 70 ára afmælis Kópavogsbæjar var afmælisbragur á göngunni og afmælissöngurinn sunginn áður en Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ræsti gönguna. Mikil stemning og gleði ríkti í Kópavogsdalnum á meðan viðburðinum stóð og eftir göngu, þegar þátttakendur gæddu sér á köku og fylgdust með verðlaunaafhendingu.

Götugangan er fyrir 60 ára og eldri og er gengin 3,4 km leið um Kópavogsdal. Keppt er í þremur aldursflokkum, 60-69, 70-79, og 80 ára og eldri.

Sigurvegari annað árið í röð í heildarúrslitum karla var Sverrir Davíð Hauksson, en hann bar einnig sigur úr bítum í fyrra. Fyrst kvenna í mark var Rannveig Traustadóttir.

Öll úrslit er að finna á timataka.net.

Einnig voru veit útdráttarverðlaun. Útilíf lagði til útdráttarverðlaunin og MS bauð upp á drykki, Næringu og Hleðslu.