Haldið upp á vináttu í Kópavogi

Vináttuganga í Fossvoginu, Snælandsskóli og leikskólarnir í hverfinu, Furugrund, Grænatún og Álfatú…
Vináttuganga í Fossvoginu, Snælandsskóli og leikskólarnir í hverfinu, Furugrund, Grænatún og Álfatún tóku þátt.

Skólar og leikskólar í Kópavogi tóku þátt í dagskrá og samveru í sínu skólahverfi á baráttudegi gegn einelti, 8. nóvember.

Hefð er fyrir því hjá skólum í Kópavogi að minna á mikilvægi vináttu og nauðsyn þess að berjast gegn einelti þennan dag en haldið hefur verið upp á daginn í skólum í Kópavogi frá árinu 2013.

Á þessum degi sameinast grunnskólanemendur og leikskólanemendur og er bryddað upp á ýmsu skemmtilegu í tilefni dagsins. Farið í göngur um hverfin, dagskrá er í skólum og börn á ólíkum aldri vinna saman verkefni.

Bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, sótti Snælandsskóla heim að þessu sinni og gekk með börnum úr hverfinu um Fossvogsdal. Nemendur úr 5.og 10.bekk höfðu sótt leikskólabörn í sína skóla og allur hópurinn sameinaðist í göngunni. Að lokinni göngu unnu vinabekkir og leikskólabörn saman að skemmtilegum verkefnum.

„Áherslan á vináttu og samvinnu barna er til fyrirmyndar og eflir börnin. Það er einstök jákvæð og skemmtileg stemning í skólunum þennan dag sem hefur án efa góð áhrif á samfélagið okkar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.