Hlýjar kveðjur til Fjarðabyggðar

Bæjarstjórn Kópavogs.
Bæjarstjórn Kópavogs.

Bæjarstjórn Kópavogs sendir íbúum Fjarðabyggðar hlýjar kveðjur. 

Á fundi bæjarstjórnar 28. mars var eftirfarandi bókun samþykkt:

"Bæjarstjórn Kópavogs sendir hlýjar kveðjur til Fjarðabyggðar í ljósi þeirra hamfara sem hafa dunið þar yfir. Hugur okkar er hjá íbúum Fjarðabyggðar sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín og standa nú í ströngu við að takast á við afleiðingar atburðanna.“