Hollráð um heitt vatn

Hollráð um heitt vatn í kuldatíð.
Hollráð um heitt vatn í kuldatíð.

Í kuldatíðinni er fyrirtak að kynna sér hollráð Veitna um notkun á heita vatninu.

Hitinn á hitaveituvatninu getur verið hár þegar notkun er mikil. Mikilvægt er að setja skorður á ofnloka, þannig að ekki sé hægt að opna fyrir fullt rennsli inn á ofninn, því þá getur hann orðið hættulega heitur. Þegar kólna fer í veðri er nauðsynlegt að yfirfara hitakerfi hússins og jafnvægisstilla það þannig að það uppfylli meginhlutverk sín þ.e. að skapa þægilegan innihita, halda kostnaði í lágmarki og nýta heita vatnið sem best.

Nánar á vef Veitna