Joana Rita Nunes Pava starfar í Kópavogslaug en 91% aðspurðra í þjónustukönnun Gallup eru ánægð með aðstöðu til íþróttaiðkunar í Kópavogi.
88% Kópavogsbúar eru ánægðir með Kópavog sem stað til að búa á og eykst ánægja íbúa milli ára, að því er fram kemur í könnun Gallup á þjónustu sveitarfélaga. Í könnuninni er spurt um viðhorf til þjónustu stærstu sveitarfélaga í ýmsum málaflokkum. Kópavogsbær er yfir meðaltali sveitarfélaga í nær öllum liðum og hefur ánægja aukist í flestum málaflokkum samanborið við í fyrra.
Mest er ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum en þar eru 91% ánægð. Þá eykst ánægja með þjónustu við barnafjölskyldur milli ára og hefur aukist síðustu ár, bæði er snýr að þjónustu í leik- og grunnskólum. Ánægja með menningarmál mælist 72% og 79% aðspurðra eru ánægð með þjónustu í tengslum við sorphirðu, sem er hæst meðal sveitarfélaga.
Í flestum málaflokkum hefur orðið marktæk jákvæð breyting frá þjónustukönnun síðasta árs en mest eykst ánægja íbúa í þjónustu grunnskóla þar eykst ánægja úr 68% í 75% og þjónustu leikskóla en þar eykst ánægja úr 58% í 67%.
„Við erum afskaplega þakklát að sjá hversu mikil ánægja er með þjónustu í Kópavogi og er ánægjan heilt yfir að aukast milli ára. Þá sjáum við mesta ánægjuaukningu í þjónustu leik- og grunnskóla en Kópavogsbær fór í miklar breytingar á leikskólamódelinu og hefur verið að kynna aðgerðir í grunnskólamálum. Mikil ánægja er með aðstöðu til íþróttaiðkunar og mælist ánægjan hæst meðal sveitarfélaga. Kópavogsbær er í flestum málaflokkum yfir meðaltali á landsvísu. Við munum áfram setja metnað í enn betri þjónustu við íbúa í öllum málaflokkum,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Spurt er um þjónustu í tólf málaflokkum, í tíu þeirra er Kópavogur yfir meðaltali sveitarfélaga á landsvísu. Í öllum málaflokkum er ánægja mun meiri en óánægja.
Könnunin var framkvæmd á tímabilinu 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026. Um er að ræða síma- og netkönnun í 20 stærstu sveitarfélögum landsins, þátttakendur eru 18 ára og eldri, notast er við lagskipt tilviljunarúrtak úr viðhorfahópi Gallup. Gagnaöflun stóð yfir þar til tilteknum fjölda var náð í hverju sveitarfélagi, fjöldi svarenda í Kópavogi voru 446.
Þjónustukönnun Gallup