Leitin að jólahúsinu í Kópavogi er hafin.
Leitin að jólahúsi Kópavogs árið 2025 er hafin. Óskað er eftir tilnefningum íbúa sem geta sent inn ábendingar og hugmyndir á vef bæjarins.
Þetta er í fjórða sinn sem leitað er að jólalegasta húsinu í bænum. Í fyrra varð fyrir valinu hús að Digranesvegi, en áður í Daltúni og Múlalind sem hrepptu titilinn.
„Þetta er svo skemmtilegt og dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð í bænum á myrkasta tíma ársins,“ segir Elísabet Sveinsdóttir, formaður lista- og menningaráðs Kópavogs en það stendur fyrir leitinni að jólahúsinu.
Við valið á húsinu er horft til jólafílings, birtu og samhengis við umhverfið. Hægt er að skila inn tilnefningum til 12. desember og verður val á jólahúsinu kynnt þann 15.desember.
Senda inn tilnefningu