Jólastjarnan á Hálsatorgi

Jólastjarnan á Hálsatorgi.
Jólastjarnan á Hálsatorgi.

Jólastjarnan á Hálsatorgi er komin á sinn stað þriðja árið í röð. Uppsetning jólaljósa í Kópavogsbæ er þannig langt komin, en henni lýkur þegar tendrað verður á jólatréinu laugardaginn 27.nóvember. Ekki verður þó um hefðbundna aðventuhátíð að ræða vegna fjöldatakmarkana. 

Menningarhúsin eru  opin venju samkvæmt en smiðjur hafa verið felldar niður. Tónleikahald í Salnum er með hefðbundnum hætti,  í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur.