Ný ásýnd á Google map

Naustavörin í Kópavogi eins og hún birtist á Google map.
Naustavörin í Kópavogi eins og hún birtist á Google map.

Myndir úr Kópavogi á kortavefnum Google map hafa allar verið endurnýjaðar. 

Fyrri myndir voru teknar árið 2013 og ýmislegt breyst í bænum á þessum tíma, þannig að nú sjá notendur réttari götusýn en áður. Þar munar miklu í nýjum hverfum eins og á Kársnesi og víðar. 

Um er að ræða 365 gráðu myndir, teknar á 3 til 5 metra fresti, í háskerpu. 

Alls þurfti að aka 175 km um bæinn til að ná myndum í öllum 320 götum bæjarins. 

Verkið var unnið af fyrirtækinu Sýndarferð fyrir Kópavogsbæ.